Herbalife SKIN rakagefandi dagkrem sem eykur bjarma - 50 ml

Herbalife SKIN rakagefandi dagkrem sem eykur bjarma -  Mynd af vöru
Vörunúmer 0830
Leiðbeinandi smásöluverð 11.100 kr.

Yfirlitsupplýsingar um vöru

 

Nærðu húðina með rakagefandi dagkreminu sem eykur bjarma. Þetta rakakrem veldur því að það birtir yfir andlitinu. Það hjálpar til við að gera húðina sléttari og mýkri og færa henni hraustlegan bjarma á aðeins sjö dögum.* Húðvæn efnablandan inniheldur B-, C- og E-vítamín, alóvera og fræolíur sem gæða húðina fallegri útgeislun án farða.

 

Helstu einkenni og kostir:

  • Án viðbættra parabena.
  • Án viðbættra súlfata.
  • Hjálpar til við að draga úr fínum línum og hrukkum á aðeins 7 dögum.**
  • Klínískar prófanir hafa sýnt fram á tvöföldun á raka í húðinni eftir átta klukkustundir.***
  • Hentar fyrir allar húðgerðir.
  • Hentar bæði körlum og konum.
  • Grimmdarlaus vara.

 

Notkunarleiðbeiningar:

Berið rausnarlegt magn á húðina eftir notkun á hreinsikremi, andlitsvatni og húðdropum. Á kvöldin mælum við með að nota endurnærandi næturkremið úr Herbalife SKIN úrvalinu til að efla húðumönnunina enn frekar.

 

* Klínísk prófun á þátttakendum fór þannig fram að notuð voru Visioscan-mælitæki og ljósmyndagreining (Reverse Photo Engineering) til að mæla hversu óslétt húðin var eftir 0, 7 og 42 daga.

** Prófun á þátttakendum byggðist á einkunnagjöf sérfræðings í sjónrænu mati eftir 2, 4 og 7 daga.

*** Prófað á þátttakendum með því að mæla rakastig í húðinni eftir 8  klukkustundir. Hjá 100% þátttakenda var rakastig húðarinnar tvöfalt hærra eftir 8 klst. en það var fyrir prófið.