Microbiotic Max fæðubótarefni - Vanillubragð - 20 smápakkar

173K | Microbiotic Max fæðubótarefni - Vanillubragð - 20 smápakkar
Vörunúmer 173K
Leiðbeinandi smásöluverð 10.700 kr.

Yfirlitsupplýsingar um vöru

Meltingarkerfið er ótrúlegt. Það hýsir billjónir af bakteríum, sumar góðar, sumar slæmar og flestar þeirra eiga sér búsetu í þörmunum.1 Þarmarnir afkasta afar miklu, án þess að við áttum okkur á því. Má þar nefna að brjóta fæðuna niður í næringarefni, að leysa úr læðingi orku og að fjarlægja úrgang úr líkamanum.2  

Þess vegna er svo mikilvægt að hlúa að heilsu þarmanna með því að borða fæðu sem inniheldur góðgerla og góðgerlaörva. Góðgerlar, eins og Lactobacillus og Bifidobacterium stofnarnir, geta hjálpað til við að koma jafnvægi á magn og fjölbreytni góðra gerla í þörmunum3,4, en góðgerlaörvar næra góðu gerlana3.   

 

Microbiotic Max er fæðubótarefni í duftformi með blöndu af góðgerlum (meltingargerlum) og góðgerlaörvandi trefjum sem vinna vel saman að því að hjálpa fólki að ná næringarmarkmiðum sínum.

 

Varan er trefjarík og hver skammtur inniheldur 2 milljarða af lifandi gerlum af stofnunum Bifidobacterium lactis og Lactobacillus helveticus.

Njótið hins milda vanillubragðs af þessari nytsamlegu vöru með því að bæta duftinu úr 1 smápakka út í hálft glas af vatni eða með því að hræra því saman við eftirlætisdrykkinn úr Formula 1 úrvalinu eftir blöndun.  

 

Microbiotic Max fæst í öskju með 20 smápökkum sem gerir fólki enn auðveldara að standa við næringarmarkmiðin hvert sem leiðin liggur. 

 

Helstu einkenni og kostir:

• Hver skammtur inniheldur 2 milljarða af lifandi gerlum af stofnunum Bifidobacterium lactis og Lactobacillus helveticus

• Án glútens 

• Trefjaríkt

• Engin sætuefni, litarefni eða rotvarnarefni

• Engin þörf á geymslu í kæliskáp

• Milt vanillubragð

 

Notkunarleiðbeiningar: 

Bætið 1 smápakka (2 g) út í hálft glas af vatni (u.þ.b. 100 ml), hrærið þar til duftið leysist upp og njótið svo vel. Drekka má Microbiotic Max eitt sér. Einnig má hræra því saman við í eftirlætisdrykkinn úr Formula 1 úrvalinu eftir að hann hefur verið blandaður. Gætið þess að allur blöndunarvökvi sé kaldari en 25°C til að forðast að skerða verkun vörunnar. Njótið Microbiotic Max einu sinni á dag. 

 

Notið þessa vöru sem hluta af vel samsettu og fjölbreyttu mataræði og heilnæmum og virkum lífsstíl.

 

Heimildir 

1. Sender R, Fuchs S, Milo R. Revised Estimates for the Number of Human and Bacteria Cells in the Body. Tímaritið PLoS Biology 2016;14(8):e1002533.

2. Boland M. Human digestion--a processing perspective. Tímaritið Journal of the Science of Food and Agriculture. Maí 2016;96(7):2275-83. doi: 10.1002/jsfa.7601. Rafræn útgáfa 5. feb. 2016. PMID: 26711173.

3. Markowiak P, Śliżewska K. Effects of Probiotics, Prebiotics, and Synbiotics on Human Health. Tímaritið Nutrients. 2017;9(9).

4. Li C, Niu Z, Zou M, Liu S, Wang M, Gu X, Lu H, Tian H, Jha R. Probiotics, prebiotics, and synbiotics regulate the intestinal microbiota differentially and restore the relative abundance of specific gut microorganisms. Tímaritið Journal of Dairy Science. Júlí 2020;103(7):5816-5829.