Herbal Aloe styrkjandi hárnæring - 250 ml

Herbal Aloe styrkjandi hárnæring -  Mynd af vöru
Vörunúmer 2565
Leiðbeinandi smásöluverð 2.100 kr.

Yfirlitsupplýsingar um vöru

 

Styrktu og djúpnærðu hárið með öflugu hárnæringunni okkar. Styrkjandi Herbal Aloe hárnæringin inniheldur efnablöndu sem varðveitir litinn. Jafnframt hefur hún að geyma vatnsrofið hveitiprótein til þess að hjálpa til við að vernda, lagfæra og styrkja hárið og gera það mýkra og silkikenndara strax eftir eina notkun.*

 

Helstu einkenni og kostir:

  • Háþróuð hárnæring með hveitipróteini.
  • Nærir og rakafyllir hárið.
  • Efnablandan varðveitir lit hársins.
  • Án viðbættra parabena.
  • Án viðbættra súlfata.

 

Notkunarleiðbeiningar:

Dreifið næringunni jafnt í blautt hárið, til að þekja það allt frá rótum til enda, og bíðið í fimm mínútur. Skolið vandlega og greiðið svo eins og venjulega. Til að ná sem bestum árangri er gott að þvo hárið fyrst með styrkjandi Herbal Aloe sjampói.

 

* Þegar styrkjandi hárnæringin er notuð samhliða styrkjandi sjampóinu samanborið við ómeðhöndlað hár. Niðurstöður byggðar á rannsókn á áhrifum á styrk hársins og slit þess. Meðalgildi úr greiðsluprófi sem var framkvæmt á sjálfstæðri rannsóknarstofu á „sködduðu“ hári. Gerður var samanburður á fjölda slitþráða á ómeðhöndluðu hári og eftir notkun á styrkjandi Herbal Aloe sjampói og hárnæringu.