Formula 1 - Próteindrykkur - Yndislegt jarðarberjabragð - 550 g

Formula 1 - Próteindrykkur - Yndislegt jarðarberjabragð - Mynd af vöru
Vörunúmer 4463
Leiðbeinandi smásöluverð 7.930 kr.

Yfirlitsupplýsingar um vöru

 

Vantar þig heilnæma máltíð sem er ljúffeng, nærandi og fljótleg í framreiðslu? Við kynnum Formula 1 með yndislegu jarðarberjabragði, en Formula 1 var einmitt brautryðjandann í vöruúrvali Herbalife Nutrition.

Innihaldsefnin í duftinu eru vegan og það er auðugt af próteini, sem stuðlar að vexti og viðhaldi vöðvamassa.

Formula 1 máltíðardrykkurinn inniheldur hágæðaprótein, trefjar, 25 vítamín og steinefni og fæst með fjöldanum öllum af spennandi bragðtegundum.

Þetta er máltíðardrykkur sem er gerður til að hjálpa fólki að viðhalda góðum lífsstíl og uppfylla næringarþarfirnar. Auðvelt er að blanda Formula 1 drykkinn og bragðið hefur ljúffenga fyllingu.

Njótið Formula 1 daglega sem heilnæms máltíðarvalkosts.

 

Helstu einkenni og kostir:

  • Ríkulegt próteinmagn.
  • Án glútens.
  • Vegan innihaldsefni.
  • Án gervilitarefna.
  • Náttúrulegt bragð.
  • 25 vítamín og steinefni.

 

Notkunarleiðbeiningar:

Hristið dósina varlega fyrir notkun því innihaldið gæti hafa sest til. Blandið tveimur mæliskeiðum af dufti (26 g) saman við 250 ml af léttmjólk og blandið þar til drykkurinn verður silkimjúkur.

Notið 250 ml af kalk- og vítamínbættum sojadrykk til blöndunar, ef óskað er eftir mjólkurlausum drykk.

Til að tryggja sér heilnæma næringu: Drekkið Formula 1 máltíðardrykk einu sinni á dag í stað máltíðar og borðið tvær máltíðir með vel samsettri næringu.

Til þyngdarstjórnunar: Drekkið Formula 1 máltíðardrykk tvisvar á dag í stað máltíða og borðið eina máltíð með vel samsettri næringu.

Notið þessa vöru sem hluta af vel samsettu og fjölbreyttu mataræði og heilnæmum og virkum lífsstíl.