Hrákökur með súkkulaði- og heslihnetubragði

Höfundur: Herbalife Nutrition
Uppskrift að hrákökum sem eru heilnæmt góðgæti með súkkulaði- og heslihnetubragði

Í huganum gæti bakstur stundum virst tímafrekur og ekki skila nægilega miklu. Aðeins örfá skref þarf til að búa til þetta ljúffenga góðgæti. Hér er því komin uppskrift sem er afar fljótleg og auðveld í framkvæmd. Þessar hrákökur eru einnig góður valkostur í staðinn fyrir annað eftirsótt góðgæti – súkkulaðibitakökur.

Fyrir: 8
Undirbúningstími: 10 mínútur
Innihaldsefni:
  • Í kökurnar:
  • 2 mæliskeiðar Formula 1 próteindrykkur með silkimjúku súkkulaðibragði
  • 60 g haframjöl
  • 1 vel þroskaður banani, stappaður
  • 1 msk. hunang
  • 1 msk. heslihnetusmjör
  • Til skreytingar (valfrjálst):
  • 20 g dökkt súkkulaði, brætt
  • 1 msk. heslihnetur, niðurskornar
Aðferð:

Setjið öll innihaldsefnin fyrir hrákökurnar í matvinnsluvél og blandið þar til kekkjalaust deig hefur myndast. Skiptið deiginu í 8 kúlur og fletjið þær í smákökulögun.

Dreypið bræddu dökku súkkulaði yfir kökurnar og dreifið yfir þær niðurskornum heslihnetum áður en þær eru bornar fram.

Næringarefni í skammti:
Orka (kcal) Fita (g) Kolvetni (g) Sykur (g) Trefjar (g) Prótein (g)
Í skammti 74 2,2 11 5,5 1,5 2,4